Ţeir kalla mig Gátusmiđinn....Tóbaksgammur gammsson
Kristinn Björnsson frændi notaði eina símtalið sem hann fékk af Litla-Hrauni og hringdi í mig. Ekki var hann að biðja mig um að beila sig út. Ónei aldeilis ekki. Hann sagðist hafa það fínt og bað að heilsa konu sinni og lögfræðingi. Hann vildi fá aðra gátu takk fyrir og ég sem vinur gat bara ekki fyrir nokkra muni neitað frænda um það.
Spurt er um setningu sem hnaut af vörum stjórmálamanns í USA fyrir þónokkru síðan. Þessi maður var umdeldur og þess má geta að setningunni fylgdi frægt látbragð með höndunum.
I.A.N.A.C
P.s. Kristinn. Passaðu þig á Kio Briggs. Hann er ekki eins saklaus og hann lítur út fyrir að vera
GetraunTóbaksgammur gammsson
Ég hef gaman af getraunum í flestum útgáfum. En undantekninginn er kannski lengjan og 1x2 sem mér þykir drulla.En ég er með nýja tegund af getraun. Hún gengur út á það að ég kem með skamstafanir úr frægum texta, ræðu eða eitthverju krappi og svo eiga diggir lesendur að segja til um hvað þessi skammstöfun stendur fyrir.
DÆMI: spurt er um textabrot úr lagi úr frægu popplagi.... S:O:H:E:M:M:M:F.V.M.
SVAR. Stál og hnífur er merki mitt merki farandverkamanna. Stal og nífur eftir Bubba kóng
Spurt er um frægar setningar úr kvikmynd um ástralskan ofurhuga. Y.C.T.A.K? T.I.A.K.
Svör óskast í kommentadótið
GottTóbaksgammur gammsson

Stjórnmálamenn og aðrir minna þroskaðir menn hafa áhyggjur af litlum áhuga ungs fólks á pólitík. Þetta fólk klórar sér í núðlunni og skilur ekkert í þessu.
Það má benda á að Fulltrúar "unga" fólksinns er t.d. Birkir Jón Jónsson sem er kannski 27 ára gamall en ber af sér þokka 60stugs hreppstjóra í afdölum.
En hvað um það. Ég er eins og alltaf með lausn á þessu vandamáli (ef vandamál skal kalla)
Byrjum á að líta á þingið eins og fótbolta. Reyndar yrði bara 2 deildir. Úrvalsdeild fyrir núverandi flokka og 2. deild fyrir nýja flokka. Svo þurfa þeir að skora stig hjá kjósendum og komast þá upp um deild. Að sama skapi geta flokkar fallið með tilheyrandi niðurlægingu og stuðningsmannafækkun.
Svo geta flokkar keypt og selt Þing/leikmenn en slíkt gæti komið sér vel fyrir framsókn því eins og staðan í þingdeildinni er í dag er sá flokkur í mikilli fallbaráttu.
Formenni flokkanna verða þjálfarar. Það þÝðir að þeir geta sett menn á bekkinn, stillt upp sínu sterkasta liði leik fyrir leik og sett "markaskorara (kjaftvaska) inná þing rétt fyrir þinghlé.
Forseti Alþingis verður dómari með öllum þeim leiðindum sem því fylgir.
Samin verða stuðningsmannalög, bolir útbúnir og menn velja sitt lið til að halda með. Svo eftir hvern þingfund verður vital við þjáfara (formenn) og fyrirliða.
Þetta form er garantí fyrir því að vega upp virðingu og vinsældir sem hið háa alþingi okkar á skilið. Þetta mundi líka auka áhugan fábjána á þjóðmálum af því gefnu að þeir fari vel eftir því sem kennt verður næst en það er hvernig halda á kjafti þegar maður hefur ekki hugmynd um hvað er rætt
GásleysiTóbaksgammur gammsson
Eins og margir vita á ég vin sem heitir Birgir en komum að því seinna.
Oft heyri ég talað um að eithvað sé gert af gáleysi.
"Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 4 mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi"
Menn gera víst hitt og þetta af gáleysi en var gáleysið af gáleysi? eða var það skipulagt gáleysi.
Fertug kona var fundin sek í héraðsdómi fyrir að hafa haft frammi skipulagt gáleysi. Hún var einnig fundin sek um vörslu fíkniefna
Það hlítur að skipta máli hvort gáleysið var af völdum gáleysis eða hvort um einbeittan vilja til gáleysis hafi verið um að ræða.
Þá komum við loksins að vini mínum Birgi. Hann stundar skipulagt og vel ígrundað gáleysi. Hann tekur meðvitaða ákvörðun um að vera gálaus og sýnir metnað þegar kemur að því að vita ekki neitt.
Hann er klassískt dæmi um skipulagt gáleysi og að hafa gáleysi sem lífsstíl.
Sem er örugglega ekki verra en hvað annað.
Sporđdrekinn og skjaldbakanTóbaksgammur gammsson
Fyrir 500 árum síðan stóð skjaldbaka ein á árbakka og hugðist synda yfir. Rétt áður en hún stingur sér til sunds kemur að máli við hana sporðdreki og biður hana um far yfir ána. Skjaldbakan skellti upp úr og sagði sporðdrekanum að hann mundi bara stinga hana með skottinu á sér (sem er eitrað)"Nei nei nei" sagði sporðdrekinn og hló. "Ef ég sting þig á leiðinni þá sekkur þú og við deyjum bæði"
Skjaldbakan hugsaði sig um í dulitla stund en féllst svo að lokum á að flytja vin okkar sporðdrekan yfir ánna.
Sporðdrekinn prílaði upp á skjaldbökuna og hún byrjaði að synda yfir. En þegar skjaldbakan var hálfnuð yfir ánna stakk sporðdrekinn hana ítrekað og oft með eiturhala sínum.
"hvers vegna gerðir þú þetta" spurði skjaldbakan sár. "nú deyjum við bæði"
"Humm??? það er rétt hjá þér en þetta er bara í eðlinu mínu" svaraði drekkinn og þau drápust bæði
Hvað kennir þetta okkur?
Jú skjaldbakan var heimsk mella að treysta sporðdrekanum
End of story
Refurinn og berin súruTóbaksgammur gammsson
Einu sinni fyrir óralögnu síðan var refur einn á vappi. Það var hart í ári og rebbi var svangur. Allt í einu kemur rebbi vinur okkar að stóru tré og upp í trénu hanga geysilega girnileg rómber.
Berin góðu voru í c.a. 2.34m hæð frá jörðu þannig að refur þurfti að hoppa.
Hann hoppaði og hoppaði í örvæntingafullu kapphlaupi við hungrið en allt kom fyrir ekki
Loks hneig sól til viðar og refur gafst upp. Þá segir Rebbi:
"Það var bara gott að ég náði ekki berjunum. Þau voru hvurt sem er súr"
Þessi saga er ekki bara sögð til skemmtunar heldur er hún líka fyrir vin minn Birgi Árna Birgisson.
Næst fáum við að heyra um sporðdrekann og skjaldbökuna
SÖGUFÖLSUN!Tóbaksgammur gammsson
Ég var að enda við að horfa á stórmyndina Kóngur KONG. Fínasta mynd en mér brá heldur betur í brún þegar hún skyndilega endaði.
Það er alveg rétt að nokkrir stórhuga menn héldu til hafs og fundu Hauskúpueyju.
Það er líka rétt að á þessari eyju var margt um undarleg dýr og þeim tókst að fanga það gríðarstóran apa er nefdur var Kóngur KONG.
Einnig er alveg rétt að Kóngur KONG var hafður til sýnis, varð ástfanginn af góðhjartaðri leikkonu og gekk berserksgang um New York.
Það er hinsvegar ekki allskostar rétt að hann hafi verið myrtur eftir lætin ónei.
Það rétta er að hann var handsamaður aftur og hafður til sýnis allt til ársin 1941. Þá voru flestir komnir með leið á apanum og hann flutti ásamt leikkonuni góhjörtuðu til Dallas.
Það giftu þau sig, eignuðust 2 yndislegar dætur og urðu fyrirmyndaborgarar.
Kóngur KONG fór að vinna sem gjaldkeri í banka og hún var heima að hugsa um börnin.
Árið 1946 bauðst Kóngi KONG leikstjórnadastaða í Dallas Cowboys en á leið á sína fyrstu æfingu missti hann stjórn á bíl sínum, keyrði á tré og var úrskurðaður látin þega á spítalan kom.
En þetta passaði greinilega ekki in í “glansmynd” Peters Jackson þannig að hann LAUG til um endinn sem var rangt og til þess fallið að sverta ímynd Kóngs KONGS.
Allright!!Tóbaksgammur gammsson
Já það má með sanni segja að nú sé hátið hjá Bloggnúsi vini mínum. Hann er búin að ganga frá baðherbergi sínu og það á met tíma og með litlum sem engum kosnaði (glöggir lesendur finna fyrir ögn af kaldhæðni)En ég er svo heppinn að hafa fengið í hendurnar kosnaðaráætlun og verkplanið frá Bigga mínum:
19stk ultragrip kíttistúpur :23450kr
14stk undraskeri úr sjónvarpsmarkaðnum :36500kr
2 stk sólgleraugu Gucci :30000
20fm náttúruflísar af ruslahaugunum :0kr
1stk sturtubotn frá Gísla Hermans :22 beittir balar
400stk 19"naglar :5673kr
1stk dalmatíuhundur :130000kr
18000 ferðir í spilakassann dulbúnar sem ferðir í Hamraborg : ÓMETANLEGT(mastercard er fyrir allt annað)
SAMTALS: MIKIÐ AF PENINGUM,VINNU TIL EINSKINS
(þessar uppplýsingar er trúnaðarmál og ekki til opinberrar birtingar í öllum löndum utan Sómalíu, færeyjum og dvergríkjum)
Tehagdór heim!Tóbaksgammur gammsson
Geysilegur hiti, peningaleysi, þjófar, morðingjar, snákar og stingiflugur.
Við þennan veruleika býr Teghadór vinur minn úti á Spáni. Theagdór fór út til að finna frelsið. Finna hamingju og kannski smá slatta af gulli en leit hanns að þessu snérist upp í martröð.
Þess vegna hef ég ákveðið að hleypa af stokkunum söfnun fyrir tegahdór vin minn og bið fólk að senda mömmu hanns teppi, niðursoðin mat, gömul föt, skíði, sófa og allt það sem kæmi sér vel fyrir vin minn teagdhór. Kolbeinn og B. Árni Birgisson mun sjá um að taka við hjálpargögnum og koma þeim til skila.
Guð Blessi Teahgdór og hjálpum honum í guðs almáttugs bænum